
Aðalfundur Félags Fagkvenna 2026 verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl n.k. kl. 19:30 í Snæfelli, fundarsal í húsi Fagfélaganna. Gengið er inn í salinn Grafarvogsmegin, fyrir neðan húsið. Inngangur er merktur „h“.
Boðið verður upp á léttar veitingar. Öll velkomin!
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál
Stjórn skipa Formaður, varaformaður og 3-6 meðstjórnendur. Skipan í hvert hlutverk er til tveggja ára. Tímabilið 2026-2028 skal kjósa til varaformanns og þriggja meðstjórnenda. Öll áhugasöm eru hvött til að gefa kost á sér í stjórn.
Félag fagkvenna stendur og fellur með því hversu mörg eru tilbúin að stíga fram og taka þátt. Ef við viljum sjá félagið vaxa, hafa áhrif og verða sterkari rödd innan iðngreina, þá gerist það ekki af sjálfu sér. Það gerist þegar við ákveðum að leggja okkar af mörkum.
Að gefa kost á sér í stjórn er ekki bara hlutverk, það er tækifæri til að móta framtíðina. Það er vettvangur þar sem reynsla, sjónarmið og hugmyndir fá að njóta sín og verða að raunverulegum breytingum. Hver einasta rödd skiptir máli.
Við vitum að margar okkar fagkvenna og fagkvára búa yfir gríðarlegri þekkingu, innsýn og krafti. Til að félagið nái að þróast áfram þurfum við að fá fleiri slíkar raddir að borðinu. Fjölbreytt og virk stjórn er lykillinn að því að halda áfram að byggja upp sterkt samfélag fyrir Fagkonur, skapa tækifæri og brjóta niður þær hindranir sem enn eru til staðar.
Það þarf ekki að hafa reynslu af stjórnarstörfum eða vera „rétti tíminn“. Það sem skiptir máli er viljinn til að taka þátt, hafa áhrif og vinna með öðrum að sameiginlegum hagsmunum og markmiðum.
Ef þú hefur eitthvað fram að færa þá er þetta tækifærið – Gríptu það!
Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
f.h. stjórnar,
Jóhanna Bárðardóttir, formaður