
Sagan
Félag Fagkvenna var stofnað haustið 2016 af 11 fagkonum. Þar var nafnið ákveðið, tilgangur og framtíðarplön félagsins rædd. Í fyrstu stjórn félagsins sátu Guðný Helga Grímsdóttir, Eva Björk Sigurjónsdóttir húsasmiður, Margrét Arnarsdóttir rafvirki, Svanbjörg Vilbergsdóttir pípulagningameistari og Þeba Björt Karlsdóttir rafvirkjameistari.
Samþykktir félagsins
1. gr.
Félagið heitir Félag fagkvenna
2. gr.
Tilgangur félagsins er að hvetja konur að sækja nám og störf í sem teljast vera í karllægum iðngreinum.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að kynna margvísleg störf þeirra iðngreina sem eru í boði, búa til öflugt tengslanet, virkja fleiri konur og hvetja konur áfram í starfi sínu.
Einnig mun félagið skoða hvaða þættir mættu fara betur til að gera vinnuumhverfið betra og meira aðlaðandi.
Allt sem félagið tekur að sér er gert á jákvæðan og uppbyggilegan máta.
4. gr.
Félagið er fyrir allar þær konur sem eru með sveinspróf, á námssamningi eða í námi sem telst vera í karllægri iðngrein.
5. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
6. gr.
Starfstímabil félagsins er frá 1. September til 31. águst ár hvert. Aðalfund skal vera haldin í seinasta lagi 30. águst ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar lögð fram
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Lagabreytingar
Ákvörðun félagsgjalds
Kosning stjórnar
Önnur mál
7.gr
Stjórn félagsins skal skipuð 3-8 félagskonum, formanni, varaformanni og 3 – 6 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að 8 varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
8.gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.
Hafa skal félagsskrá yfir félagskonur. Heimilt er að segja sig út Félag fagkvenna hvenær sem er með tilkynningu til formanns, félagsgjald fæst þó ekki endurgreitt. Ef félagsgjald er ekki greitt í heilt ár er félagskona felld út af félagsskrá.
9. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til uppbyggingar félagsins og nýtt í þá viðburði og fundi sem haldir eru á vegum Félags fagkvenna.
10. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Barnaspítala hringsins.
———–
Lög þessi voru samþykkt á Stofnfundi
Dagsetning: 28.11.2016.
„Okkur langar til þess að vera með samstarf við karla, en ekki samkeppni“
Setning frá stofnfundi