Tara stóð uppi sem sigurvegari

Á árlegu keilumóti Félags Fagkvenna var góð stemmning og fagkonur léku á alls oddi. Boðið var upp á fordrykk áður en leikar hófust og var mætingin góð. Gleði og glens í bland við mikil tilþrif og einbeitingu einkenndu keppnina. Eftir keiluna settist hópurinn niður saman og fagkonur gæddu sér á hlaðborði af pizzum og eflduHalda áfram að lesa „Tara stóð uppi sem sigurvegari“

Fagkonur á Starfamessu

Fagkonur tóku þátt í Starfamessu í Kársnesskóla í Kópavogi á dögunum. Starfamessur eru viðburðir sem yfirleitt eru skipulagðir af náms- og starfsráðgjöfum. Fyrirtækjum og fólki úr fjölbreyttum starfsgreinum er boðið að taka þátt og kynna störf og/eða fyrirtæki fyrir nemendum á efsta stigi. Markmiðið er að nemendur fái að sjá hversu margar leiðir standa íHalda áfram að lesa „Fagkonur á Starfamessu“

Árlegt keilumót Fagkvenna

Fagkonur nær og fjær! Það er komið að hinu árlega keilumóti Félags Fagkvenna. Við hlökkum til að sjá sem flest í Keiluhöllinni Egilshöll þann 15. nóvember næstkomandi.Vinsamlegast skráið ykkur til leiks með því að smella á skráningarhlekkinn í auglýsingunni.

Fagkonur og Húsasmiðjan

Félag fagkvenna og Húsasmiðjan hefja nú samstarf til vitundarvakningar með það að markmiði að eyða staðalímyndum í iðngreinum. Við viljum hvetja alla til að kynna sér kosti iðnnáms og íhuga iðngreinar sem atvinnumöguleika. Fagkonur stefna á stóra hluti árið 2022 og við vonumst til að sjá sem flestar fagkonur með okkur í liði.

Aðalfundur Félags Fagkvenna

Aðalfundur félagsins var haldinn 15. oktober á zoom. Eins og aðstæður eru í þjóðfélaginu í dag þótti stjórn skynsamlegast að halda aðalfund með rafrænum hætti í ár. Fundurinn heppnaðist vel og voru mörg mikilvæg og skemmtileg málefni rædd. Ný stjórn var kosin og er eftirfarandi: Formaður: Margrét Halldóra Arnarsdóttir Gjaldkeri: Þeba Björt Karlsdóttir Ritari: TinnaHalda áfram að lesa „Aðalfundur Félags Fagkvenna“